Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14062
Fjölmiðlar geta haft mikil áhrif á líkamsmynd og sjálfsmynd einstaklinga, þá sérstaklega
unglinga. Niðurstöður rannsókna hafa undirstrikað hve óraunhæf framsetning fjölmiðla getur haft skaðleg áhrif á líkamsmynd og getur ýtt undir líkamskvíða. Átröskunarsjúkdómar geta verið ein birtingarmynd líkamskvíða, en margar stúlkur sem hafa neikvæða líkamsmynd þróa með sér átröskunarsjúkdóma á borð við lystarstol og lotugræðgi.
Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.A. prófs í tómstunda-‐ og
félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Í ritgerðinni verða skoðuð áhrif fjölmiðla á líkamsmynd og sjálfsmynd unglingsstúlkna. Fjallað verður um unglingsárin, sjálfsmynd, líkamsmynd, fjölmiðla, starfsmenn í félagsmiðstöð sem fyrirmyndir, forvarnir og the body project. Að lokum verður fjallað um fræðslu og viðhorfamótunarverkefni í félagsmiðstöð sem beinist að stúlkum á aldrinum 12-‐16 ára og byggir á því sem fram hefur komið í þessari ritgerð varðandi áhrif fjölmiðla og fyrirmynda
á líkamsvitund og sjálfsmynd ungra stúlkna annars vegar og hins vegar þeirri nálgun sem notuð er í "The body project", sem löguð verður að aðstæðum í íslenskum félagsmiðstöðvum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
1 Kapa.pdf | 173.41 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
2 Titilsida og bakhlid.pdf | 64.53 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna | |
3 Ritgerd.pdf | 341.23 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna |