Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14081
LS Retail .NET er ein af verslunarkerfalausnum LS Retail. Í bakendakerfi lausnarinnar (Store Controller) sjá yfirmenn verslunarinnar um að setja upp búðina og viðhalda daglegum rekstri. Verkefnið snýst um að samþætta stjórnborð fyrir yfirmenn inn í bakendakerfið svo notendur geti á auðveldan og persónubundinn hátt séð æskilegar lykiltölur og stöður í rekstri verslunarinnar.
Stjórnborðið er persónubundið fyrir hvern notanda, sem gefur notendum möguleika til að sjá mismunandi upplýsingar og/eða jafnvel sömu upplýsingar settar fram á mismunandi hátt. Hver notandi hefur þannig full tök á að skilgreina útlit og innihald sins stjórnborðs. Hönnunarhamur stjórnborðs er einnig hluti af verkefninu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
LS Dashboard Lokaskýrsla.pdf | 928.31 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |