Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14093
Verkefnið snýst um að búa til kerfið Memento. Memento finnur sjálfvirkt tengingar á milli nýrra bilanatilkynninga og bilana sem hafa komið upp í kerfum Vodafone áður og búið er að finna lausn á. Okkar lausn nýtir vélrænt gagnanám til þess að greina og flokka stöður í kerfum Vodafone. Þessar stöður notar kerfið til að tengja bilanatilkynningar við samskonar bilanir sem hafa komið upp áður með hjálp WEKA. Memento flokkar skilaboð niður í níu skráningaflokka og birtir á einfaldan og skýran hátt þannig að kerfisstjórar og aðrir geta séð í hendi sér hvort óeðlileg staða sé í kerfum Vodafone. Með þessu styttist sá tími sem fer í greiningarvinnu í tengslum við bilanatilkynningar og þar með tíminn sem fer í það að laga bilunina.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaskýrsla.pdf | 705.35 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |