Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14201
Viðfangsefni þessa verkefnis er að skoða þróun ferðamannastreymis til Íslands ásamt þróun gjaldeyristekna inn í landið frá þeim en undanfarin ár hefur ferðamannastreymi hingað til lands verið gríðarlegt . Farið verður yfir ábata ferðaþjónustunnar fyrir þjóðarbúið í heild sinni ásamt því að greina hvaða þættir hafa áhrif á komu erlendra ferðamanna. Niðurstöður sýna að á sama tíma og ferðamönnum hefur fjölgað hefur neysla hvers og eins minnkað með árunum. Ljóst er því að sparsamir ferðamenn eru farnir að koma hingað í auknum mæli. Rætt verður um þolmörk ferðamannastaða og út frá niðurstöðum verður komið með tillögur að úrbótum í því skyni að laða hingað til lands eyðsluglaðari ferðamenn ásamt því að dreifa ferðamannastraumi hingað til lands yfir lengri tíma.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS ritgerðin.pdf | 589.78 kB | Opinn | Skoða/Opna |