is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1420

Titill: 
  • Flóttafólk á Akureyri frá fyrrum Júgóslavíu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Árið 2003 kom til Akureyrar 24 manna hópur flóttafólks frá fyrrum Júgóslavíu á vegum
    Rauða kross Íslands, en þetta var í fyrsta skiptið sem Akureyrarbær tókst á við það verkefni að
    taka á móti flóttafólki. Um var að ræða hóp Serba sem bjuggu í Króatíu þegar stríðið á
    Balkanskaga braust út og sem urðu að flýja heimili sín í kjölfarið. Hópurinn, sem saman stóð
    af 6 fjölskyldum, kom hingað til lands vorið 2003 og hefur því búið hér í rúm tvö ár.
    Í ritgerðinni er verkefnið og framkvæmd þess (þ.e. móttaka flóttafólksins) kynnt sem
    og hugtakið flóttamaður og ýmsum tölulegum upplýsingum varpað fram en einnig er helstu
    stofnunum og samtökum sem að málaflokknum koma gerð skil. Megininntak ritgerðarinnar
    er þó fyrst og fremst saga flóttafólksins og viðhorf þeirra til verkefnisins og aðlögun þeirra í
    nýju samfélagi. Leitast er við að varpa ljósi á það hvernig til tókst við framkvæmdina og þá
    bæði hvað tókst vel og hvað hefði mátt gera með öðrum hætti.
    Tekin voru viðtöl við flóttafólkið og þau spurð ýmissa spurninga varðandi lífið þá og
    nú og reynt að draga fram þeirra sýn á löngu og ströngu ferli í gegnum stríð og stofnanir,
    flótta og ferðalög, sem leiddi til nýs upphafs fjarri heimahögum.
    Ýmsar spurningar vöknuðu varðandi skipulagið á framkvæmd verkefnisins, t.d.
    varðandi íslenskukennslu, greiðslu framfærslufjár, íbúðarmál og fleira. Ekki verður öllum
    spurningum svarað, en þó gerðar tillögur að úrbótum og hugmyndir viðraðar.
    Það sem stendur uppúr er að 24 manns lifa í dag betra lífi en þeir gerðu áður og segja
    að má að hér hafi þau hafið nýtt líf. Ekkert þeirra hefur snúið aftur á heimaslóðir nema til
    heimsókna og líkur eru til þess að þau verði hér um aldur og ævi.

Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1420


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Flóttafólk frá Júgóslavíu.pdf552.73 kBOpinnFlóttafólk - heildPDFSkoða/Opna