is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1430

Titill: 
  • Lengi býr að fyrstu gerð : ofþyngd og afleiðingar hennar : hvað geta tómstundafræðingar gert?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Hér fer á eftir lokaverkefni í Tómstundafræði við Kennaraháskóla Íslands. Í lokaverkefninu er fjallað um ofþyngd og afleiðingar hennar á heilsu fólks. Skoðaðar eru íslenskar rannsóknir sem gerðar hafa verið á þyngd og hreyfimynstri barna og fullorðinna. Jafnframt er litið á kannanir á neysluvenjum Íslendinga. Rýnt er í þrjár námskrár grunnskólans með tilliti til hreyfingar og heilbrigðis, með það fyrir augum að tómstundafræðingar geti nýtt sér þær. Að lokum hefur verið útbúið forvarnarverkefni sem tómstundafræðingar geta nýtt sé í forvarnarvinnu gegn ofþyngd og hreyfingarleysi.
    Niðurstöður rannsókna sýna að eitt af hverjum fjórum börnum og unglingum er of þungt eða of feitt og mörg börn hreyfa sig lítið dagsdaglega. Neysluvenjur barna og unglinga eru heldur ekki í samræmi við ráðleggingar um mataræði. Í rannsóknum sem gerðar hafa verið á fullorðnum Íslendingum kemur fram að þeir hafa þyngst undanfarin ár.

Samþykkt: 
  • 28.11.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1430


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
unnurbjorkarnfjord - lokaverkefni 2007.pdf414.74 kBOpinnMeginmálPDFSkoða/Opna
unnurbjorkarnfjord-kapaogtitilsida2007.pdf49.03 kBOpinnTitilsíðaPDFSkoða/Opna