Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14329
Í þessari grein verður sagt frá rannsóknaraðferðum sem notaðar voru í starfendarannsókn sem unnin var í samstarfi rannsakanda og grunnskólakennara sem kenndu blönduðum nemendahópum. Notaðar voru eigindlegar rannsóknaraðferðir og byggt á viðtölum, samræðum, ígrundun, vettvangsathugunum og samkennslu. Við rannsóknina var lögð áhersla á að móta og nota aðferðir og amboð er gagnast gætu kennurum til gagnrýnnar ígrundunar. Niðurstöður rannsóknarinnar voru m.a. að hugtakakort og amboð faglegrar starfskenningar reyndust kennurum vel til að ígrunda hugmyndir sínar og skoðanir á kenningum um nám, kennslu og siðfræði og hvernig þær tengjast
kennslu þeirra
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
3_hafdis1.pdf | 483.93 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |