is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14410

Titill: 
  • Áhrif 10. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu á 73. gr. tjáningarfrelsisákvæðis stjórnarskrár Íslands. Skilyrðið um nauðsyn í lýðræðisþjóðfélagi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í ritgerð þessari verður leitast við að varpa ljósi á þau áhrif sem 10. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu hefur haft á vernd tjáningarfrelsis að íslenskum rétti. Í upphafi verður gerð grein fyrir aðdraganda að lögfestingu Mannréttindasáttmálans hér á landi og endurskoðun á mannréttindakafla stjórnarskrár Íslands. Í þessu sambandi er mikilvægt að glöggva sig á réttarheimildarlegri stöðu sáttmálans og dómafordæma Mannréttindadómstóls Evrópu. Því næst verður fjallað um heimilar takmarkanir á tjáningarfrelsinu með sérstakri áherslu á skilyrðið um nauðsyn í lýðræðisþjóðfélagi. Í tengslum við það verða raktir dómar Mannréttindadómstóls Evrópu þar sem meginreglur sem hann hefur mótað á þessu sviði koma fram og helstu dómar Hæstaréttar um tjáningarfrelsið skoðaðir í því ljósi. Að lokum verður fjallað um þrjá áfellisdóma í kærumálum gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstól Evrópu sem allir voru uppsprettur heitra umræða um tjáningarfrelsið í íslensku samfélagi.

Samþykkt: 
  • 12.4.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14410


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Sigurlaug Ritgerð.pdf368.68 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna