is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Ráðstefnurit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14456

Titill: 
  • Nám og kennsla á yngsta stigi grunnskóla : einstaklingsmiðun og nýting á námsumhverfi
Útgáfa: 
  • 2012
Útdráttur: 
  • Í greininni er sagt frá rannsókn á námsumhverfi á yngsta stigi grunnskóla með hliðsjón af námi og kennslu í anda stefnumörkunar um einstaklingsmiðað nám. Fjallað er um námsumh
    verfi í skólastofum á yngsta stigi og hvernig það er frábrugðið námsumhverfi á eldri stigum grunnskólans. Reynt er að greina hvernig kennsluhættir tengjast skipulagi ytra umhverfis
    í skólastofunni, uppröðun borða,tækjum og búnaði. Rannsóknin er hluti af stærra verkefni sem kallast Starfshættir í grunnskólum.
    Þar var aflað gagna í 20 grunnskólum með vettvangsathugunum, spurningalistum og viðtölum. Í þessum hluta var einungis unnið úr vettvangsathugunum. Niðurstöður leiddu í ljós að umhverfi ískólastofum 1.– 4. bekkjar ígrunnskólunum 20 var með öðrum hætti en í eldri árgöngum, stofurnar voru líflegri, borðum var frekar raðað þannig að börnin sátu í hópum og horfðu hvert á annað og algengara var að sjá kennara vinna saman og deila með sér ábyrgð. Einnig kom í ljós að minna var um beina kennslu á yngsta stigi en á eldri stigum og meira um umræður í bekknum sem heild. Ekki virtist vera mikill munur á umhverfi milli ára á yngsta stigi. Enn virðist vera nokkuð í það að markmið um einstaklingsmiðað nám náist þó að greina megi vísbendingar um að þróun í þá átt sé lengra komin á yngsta stigi en öðrum aldursstigum.

Birtist í: 
  • Ráðstefnurit Netlu : Menntakvika 2012
Samþykkt: 
  • 19.4.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14456


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
001.pdf491.3 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna