is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14526

Titill: 
  • Hópkaupssíður á Íslandi. Rannsókn á markaði hópkaupssíða á Íslandi
  • Titill er á ensku Group Deal sites in Iceland
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Fyrirtæki leitast sífellt eftir því að finna nýjar leiðir til að nálgast viðskiptavini sína á áhrifaríkari og hagkvæmari hátt en áður. Með tilkomu hópkaupssíða á Íslandi hefur nálgun fyrirtækja að viðskiptavinum breyst mikið. Hópkaupssíður gefa fyrirtækjum færi á því að ná til mjög stórs hóps hugsanlegra viðskiptavina á öllum aldri.
    Ritgerð þessi fjallar um hinn tveggja ára gamla markað hópkaupssíða á Íslandi. Farið verður yfir það hvernig þessi markaður varð til, hver helstu fyrirtæki á markaðnum eru og hvernig þróunin á markaðnum hefur verið á þeim stutta tíma sem hann hefur verið til.
    Sýnir þessi ritgerð að þrátt fyrir mikinn uppgang á markaðnum í byrjun þar sem fjöldi hópkaupssíða spratt upp á mjög stuttum tíma var markaðurinn fljótur að ná jafnvægi þar sem aðeins fáar stórar síður með nægilegt fjármagn náðu að halda áfram. Útlit er fyrir að markaður hópkaupssíða sé kominn til að vera á Íslandi og neytendur kunni vel að meta þessa nýju leið til að nálgast vörur og þjónustu.

Samþykkt: 
  • 29.4.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14526


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Daníel_Guðjónsson.pdf995.01 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna