is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Rafræn tímarit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14635

Titill: 
  • Stefnumótun í kennaranámi : áhersla á rannsóknir – áhersla á vettvang
Útgáfa: 
  • Janúar 2012
Útdráttur: 
  • Í greininni er fjallað um mótun stefnu í kennaranámi í Kennaraháskóla Íslands, síðar á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, frá árinu 2004 til 2011. Í desember 2004 var ný stefna Kennaraháskóla Íslands samþykkt af háskólaráði. Markmiðið var að
    efla starfsmenntun við skólann, bæði með því að lengja námið og auka gæði þess, í samræmi við ákvæði Bologna-samþykktarinnar. Stefnan fól einnig í sér að efla tengsl kennaranáms við rannsóknir og við vettvang. Markmið greinarinnar er að varpa ljósi á hvernig þessi tengsl við rannsóknir og vettvang voru áformuð og rökstudd í Stefnu Kennaraháskóla Íslands 2005–2010 og hvernig hugmyndir og útfærslur á þessum tengslum hafa þróast eða breyst til loka ársins 2011. Eingöngu er því fjallað um afmarkaðar hliðar á stefnumótun í kennaranámi síðastliðin sjö ár. Hvað varðar áhersluna á tengsl við rannsóknir eru markmiðin nú víðtækari en áður; sátt virðist hafa náðst um að öll námskeið tengist rannsóknum, mikilvægi aðferðafræði í náminu og að nemendur þurfi að þróa með sér hæfni til að nýta sér og taka þátt í rannsóknum. Hugmyndir um tengsl við vettvang hafa þróast og hafa fyrstu skrefin verið tekin í að útfæra breytt markmið þar sem samvinna og samábyrgð háskólans og almennra skóla um kennaramenntun eru í brennidepli.

  • Útdráttur er á ensku

    Policy making in teacher education at the Iceland University of Education, later University of Iceland, School of Education, from the year 2004 to 2011, is the subject of the article. A new policy was approved by the university council in december 2004. The objective was to increase the quality and coherence of teacher education, increase opportunities for specialization and extend the study to a 5 year research based program, following standards in the Bologna agreement. Additionally the intention was to strengthen the links to research and theory, and to the field of practice. The purpose of the article is to shed light on how the links to research and teacher practice were planned and how they have developed the last seven years. Plans about links to research have become broader and there has been an attempt to interweave content of all courses and research, as well as to strengthen courses of research methodology. The program for practice teaching at the school of education has been under revision, and is now based on ideas about partnership between university and schools; involving increased collaboration and shared responsibility for the education of teachers.

Birtist í: 
  • Netla
ISSN: 
  • 1670-0244
Athugasemdir: 
  • Greinaflokkur um kennaramenntun til heiðurs Ólafi J. Proppé sjötugum
    á tíu ára afmæli Netlu – Veftímarits um uppeldi og menntun
Samþykkt: 
  • 2.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14635


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Stefnumótun.pdf519.93 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna