Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1464
Ritgerð þessi byggir á niðurstöðum rannsóknar á óskum og væntingum ungs fatlaðs fólks sem gerð var á vormánuðum 2007. Þátttakendur rannsóknarinnar voru sex fötluð ungmenni á þrítugsaldri. Þau eiga það sameiginlegt að óska eftir frekari námstilboðum eftir útskrift úr framhaldsskóla. Rannsóknin byggðist á opnum viðtölum, þátttökuathugunum og rýnihóp. Helstu niðurstöður voru að ungt fatlað fólk vill hafa færi á að velja nám sem hentar þeim, vilja geta stjórnað hvenær þeim er veittur stuðningur við námið og vilja fá tækifæri til starfstengdrar menntunar sem hentar þeirra áhugasviði.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að auka þurfi valmöguleika ungs fatlaðs fólk á námi að loknum framhaldsskóla.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heildarskjal.pdf | 325.02 kB | Opinn | Heildarskjal | Skoða/Opna |