is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14688

Titill: 
  • Heilsueflandi framhaldsskóli: Mat lagt á breytingaferli heilsueflingar með átta þrepa líkani Kotters
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Tilgangurinn með þessu rannsóknarverkefni var að leggja mat á árangur Flensborgarskólans í Hafnarfirði við að innleiða heilsueflingu ásamt því að greina þá þætti sem vel var staðið að sem og þá þætti sem betur mættu fara. Um er að ræða eigindlega tilviksrannsókn þar sem tekin voru viðtöl við starfsmenn og stjórnendur skólans ásamt því að tiltækum gögnum var safnað til frekari greiningar. Niðurstöður gagnaöflunar voru borin saman við breytingalíkan Kotter sem byggir á átta þrepum sem stefna að því að koma í veg fyrir algeng mistök í stórum breytingaferlum. Helstu niðurstöður benda til að nálgun stjórnenda hafi tekist vel þar sem andstaða starfsmanna við breytingaferlið hefur farið minnkandi. Þá eru tiltækar ýmsar staðfestingar á því að vel hafi tekist til með tilliti til þeirra markmiða sem sett voru í samræmi við heilsueflingu skólans.
    Helsta áskorunin sem kom fram í þessari rannsókn snýr að því hvernig eigi að festa breytingarnar í vinnustaðamenningunni. Nálgun stjórnenda hefur snúið að því að stilla kröfum í hóf hvað starfsmenn varðar og reyna að höfða til vilja starfsmanna til að stunda heilsusamlegri lífsstíl. Ákveðin hætta er því til staðar að auðvelt sé að vera hlutlaus eða óvirkur í ferlinu, sem skapar töluvert álag á fáa einstaklinga sem halda þurfa verkefninu á lofti.

  • Útdráttur er á ensku

    The purpose of this study was to evaluate the success of the project of health promoting secondary schools for Flensborgarskólinn in Hafnarfjörður along with the strengths and weaknesses of the project.
    The methodology was a qualitative case study in which employees and administrators were interviewed, and available data collected from the school’s records for further analysis.
    The findings were paired with Kotter’s 8-step process for leading change which has the aim of preventing common mistakes in the process of radical change. The findings show the success of the administrative directive as employee’s resistance to change has decreased. The available data from the school’s records confirm that the goals of the project of health promoting secondary schools for Flensborgarskólinn in Hafnarfjörður have been successfully met.
    The study showed that the main challenge is to incorporate the change into the culture of the school and make it stick. The administrative policy has been soft and geared toward the desire of the employees to lead a healthy lifestyle. Another challenge is how easy it is to be passive or inactive in the process, which results in increased workload on the few individuals who promote the project.

Samþykkt: 
  • 3.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14688


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Heilsueflandi.pdf847.03 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna