is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1476

Titill: 
  • Matur er mannsins megin
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Á síðustu árum hefur verið mikil umræða í þjóðfélaginu um gildi heilbrigðis og neyslu hollrar og góðrar fæðu. Komið hefur fram að íslensk börn eru að fitna og finna þarf leið til að sporna við offituvanda sem steðjar að. Þar sem börn verja löngum tíma í leikskóla er mikilvægt að þau fái þar kennslu um gildi hollrar og góðrar næringar, vegna þess að í flestum tilvikum er 75% af orkuþörf þeirra sinnt í leikskólanum. Í þessu lokaverkefni er reynt að svara rannsóknarspurningunni: Hvað er mataruppeldi? Kannað er gildi hollustu og næringar fyrir börn í leikskólum. Skoðað er heilbrigði og manneldismarkmið, offita barna og matvendni. Mataruppeldi er einn þeirra námsþátta sem höfundur telur að hafi gleymst og ekki verið horft á sem mikilvægan þátt innan leikskóla. Í verkefninu kemur fram hver er talin mikilvægasta máltíð dagsins og gildi þess að neyta fjölbreyttrar fæðu. Einnig kemur þar fram hvaða nám barna fer fram við matmálsverð í leikskóla. Á fyrstu æviárum skiptir hollt og gott fæði miklu máli og er því mikilvægt að huga að mataræði í leikskólum. Sagt er frá þjóðlegum hefðum og tyllidögum Íslendinga og hugmyndum höfundar um hvernig hægt er að tengja þá flesta við matarmenningu innan leikskóla á einhvern hátt, jafnframt því að gera þeim skil í leik og námi. Sagt er frá upphafi, þróun og stöðu leikskóla á Íslandi. Gerð er rannsókn og metnar ferilbækur úr vettvangsnámi leikskólakennaranema við Háskólann á Akureyri. Leitað er fanga í heimildum um fræðileg efni, og könnuð menntun deildarstjóra leikskólaeldhúss hjá nokkrum stærstu sveitarfélögum landsins. Útskýrð rannsókn sem gerð er og sagt frá niðurstöðum hennar ásamt niðurstöðum ferilbóka. Að mati höfundar leiða niðurstöður rannsóknar í ljós vöntun á fagmenntun deildarstjóra leikskólaeldhúss. Í lok verkefnisins dregur höfundur saman svör við rannsóknarspurningu sem lögð var fram og niðurstöður úr umfjöllun og leggur mat þar á.

Samþykkt: 
  • 5.6.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1476


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
360-EGG-0408.pdf392.28 kBOpinn"Matur er mannsins megin"-heildPDFSkoða/Opna