Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14901
Í þessari ritgerð er fjallað um tvær kvikmyndir í leikstjórn David Cronenberg, A History of Violence og Eastern Promises, og þær skoðaðar í ljósi heimspekinnar og hugleitt hvaða heimspekilegan lærdóm má draga af þeim. Það sem fjallað verður um er þrenns konar sjálf: sjálf höfuðpersóna, sjálf kvikmyndar og sjálf höfundar. Spurt er hvort skilningur á sjálfinu sé háður skilningi á tóminu. Einnig verður fjallað um siðferði höfuðpersóna myndanna. Umfjöllunin er reist á heideggerískum skilningi á fyrirbærafræði ásamt verufræði til glöggvunar. Meginþema ritgerðarinnar er verufræðileg staða mannsins í þeim kvikmyndaheimum sem eru kynntir í myndunum tveimur en einnig er spurt um sjálfið. Hvar er sjálfið? Er það í tóminu eða er það í skilningnum? Þessu verður reynt að svara með tilvistarlegum, verufræðilegum og sálfræðilegum nálgunum. Meginniðurstöður ritgerðarinnar eru tvær: í fyrsta lagi að sjálfið sé ekki í tóminu heldur skilningnum vegna stöðu þess í huga mannsins og í öðru lagi að í myndum Cronenberg birtist undirliggjandi félagslegur Darwinismi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerd_Karl_Holm.pdf | 506 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
forsa_ritgerar_Karl_Holm.pdf | 29.7 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
titilsa_ritgerar-Karl-HolmA.pdf | 7.73 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna |