Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14908
Um síðustu áramót lauk dr. Gerður G. Óskarsdóttir störfum hjá Reykjavíkurborg eftir 10 ára starf sem æðsti yfirmaður menntamála í borginni. Á þeim vettvangi beitti hún sér meðal annars fyrir nýtingu niðurstaðna úr könnunum og rannsóknum við ákvarðanatöku í menntamálum. Tímarit um menntarannsóknir hefur það hlutverk öðrum þræði að „benda á leiðir til þess að tryggja
að niðurstöður menntarannsókna hafi gildi í stefnumótun og starfi“. Á þessum tímamótum var því tilefni til að spyrja Gerði út í reynsluna af því að tengja saman rannsóknir og stefnumótun í
skólastarfi, auk þess sem ýmislegt annað markvert bar á góma.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
6_vidtal_gerdi1.pdf | 326.58 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |