is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14918

Titill: 
  • „Ef ég hefði engan áhuga á náms- og starfsfræðslu þá mundi ekkert gerast." Stefnumótun í ráðgjöf vegna náms- og starfsvals ungs fólks á Akranesi
  • Titill er á ensku "If I weren't interested in career education nothing would happen." Policy making regarding career decision making by young people in Akranes
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvaða stefnumótun á sér stað innan Akranesbæjar í náms- og starfsráðgjöf og hvaða stuðning ungt fólk í bænum fær við náms- og starfsval. Rannsóknin byggir á viðtölum við átta einstaklinga sem koma að náms- og starfsráðgjöf ungmenna á Akranesi. Niðurstöður benda til að stefnumótun í náms- og starfsráðgjöf sé takmörkuð og þegar eitt bæjarfélag, Akranes, er skoðað kemur í ljós að umræðuna vantar og að ekki er áætlað að móta stefnu næstu árin. Þátttakendur virðast vita af mikilvægi náms- og starfsráðgjafar og að henni mætti sinna betur. Lítið samstarf er á milli stofnana í bænum til að styðja við ungt fólk í náms- og starfsvali og ekki er gert ráð fyrir náms- og starfsfræðslu í stundatöflu grunnskóla. Eftir það er náms- og starfsfræðsla takmörkuð og stuðningur við náms- og starfsval því sömuleiðis. Vonandi geta þessar niðurstöður nýst aðilum er koma að náms- og starfsráðgjöf, til dæmis í öðrum bæjarfélögum. Niðurstöðurnar geta einnig gagnast starfandi náms- og starfsráðgjöfum og sýnt fram á mikilvægi stefnumótunar og samstarfs í ráðgjöf. Jafnframt geta niðurstöðurnar nýst Akraneskaupstað til að meta stöðu náms- og starfsráðgjafar og hvað leiðir eru færar til uppbyggingar skilvirkari náms- og starfsráðgjafar.

  • Útdráttur er á ensku

    The aim of this study was to gain insight into how policies are contributing to the local guidance service provision in Akranes and what support young people are getting from the municipality. Eight individuals, that are involved in career guidance in Akranes, where interviewed. The results indicate that policies in career guidance are limited and when one municipality is viewed, Akranes, it shows that the discussion in needed and no signs of policymaking in the near future. Participants seem to be aware of the importance of career guidance and the fact that more attention should be paid to it. There‘s little co-operation between organizations to support young people in their career choice and career education is not part of the timetable in comprehensive education. After that career education is limited and support in career choice as well. Hopefully this study is useful for persons organizing career guidance, for example in other municipalities. This study can also be useful to guidance counselors in practice to remind them of the importance of policies and co-operation in guidance. It also has implications for Akranes to evaluate it‘s stand on guidance and what needs to be emphasised to promote coherent and effective career guidance.

Samþykkt: 
  • 8.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14918


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
meistararitgerð - Ragnhildur Í. Ólafsdóttir.pdf1.3 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna