Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14939
Markmið þessarar rannsóknar er að kanna tengsl óákveðni í námsvali við skuldbindingu nemenda til náms og skóla (e. student engagement). Skuldbinding er metin í þessari rannsókn með tilliti til námslegrar þátttöku, félagslegrar samsömunar og neikvæðrar skólahegðunar nemenda. Þátttakendur í rannsókninni voru 1780 nemendur á aldrinum 16-18 ára, á bók- og starfsnámsbrautum allra framhaldsskóla landsins. Könnunin var lögð fyrir árið 2007. Niðurstöður fjölbreytuaðhvarfsgreiningar benda til þess að óákveðni í námsvali spái fyrir um hegðunarlega- og tilfinningalega skuldbindingu nemenda. Eftir því sem nemendur eru meira óákveðnir í námsvali, því minna taka þeir þátt í náminu og samsama sig félagslega í skólanum, að teknu tilliti til kyns, aldurs, menntunar foreldra, fyrri námsárangurs og hvort nemandi sé á bók- eða starfsnámsbraut framhaldsskóla. Tengsl óákveðni í námsvali við skuldbindingu til náms og skóla er nýlunda þessa verkefnis, en niðurstöður eru í samræmi við fyrri rannsóknir sem sýna mikilvægi þess að nemendur hafi skýr framtíðarmarkmið í tengslum við skuldbindingu. Niðurstöður þessarar rannsóknar styrkja stoðir undir mikilvægi náms- og starfsfræðslu alla ævi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MABjarneylokaskjalx.pdf | 846.07 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |