is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1494

Titill: 
  • Goðsögur og börn
Titill: 
  • Þór í jötunheimum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Hugmynd að þessu verkefni kviknaði þegar við fórum í vettvangsnám á yngsta stigi grunnskólans á vegum Kennaraháskóla Íslands vorið 2007. Þá langaði okkur að kynna nemendum fornsögur. Þegar farið var á stúfana til að finna efni við hæfi var ekki um auðugan garð að gresja fyrir þennan aldurshóp. Í kjölfar þess ákváðum við að búa til kennsluefni úr fornsögu og niðurstaðan var sú að endursegja sögu úr Snorra-Eddu. Af nægu efni var að taka og völdum við söguna af för Þórs til Útgarða-Loka. Sú saga á gott erindi til yngstu lesendanna að okkar mati vegna þess að í henni er tekið á ýmsum málum um lífið og tilveruna.
    Ritgerð þessi skiptist í þrjá hluta. Fyrsti hluti er greinagerð sem fjallar um goðsögur og hlutverk þeirra og tengsl við ævintýri. Einnig er fjallað um Snorra-Eddu og barnabókmenntir með yngstu kynslóðina í huga. Þar að auki er vikið að heimspekilegri nálgun við söguna um Þór. Annar hluti er kennslufræðilegur þáttur með heimspekilegum umræðum og æfingum fyrir börn. Kennsluleiðbeiningunum fylgir sagan á einfölduðu máli með orðskýringum og spurningum fyrir kennarann til styðjast við í umræðum. Þriðji hlutinn er sjálf bókin um för Þórs til Útgarða-Loka fyrir nemendur, myndskreytt og með orðskýringum.
    Lykilorð: Goðsögur, yngsta stig grunnskóla.

Athugasemdir: 
  • Grunnskólabraut
Samþykkt: 
  • 25.6.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1494


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
375tt!!!.pdf10.83 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna