Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15031
Í þessari ritgerð ætla ég að skoða hvort aðdáun unglingsstúlkna á poppstirninu Justin
Bieber geti flokkast sem átrúnaður. Meginspurning ritgerðarinnar er: Getur aðdáun
þessara stúlkna flokkast sem trú? Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á aðdáun
þessarra stúlkna og og hvernig hún geti flokkast sem trú. Trú er stórt og áhugavert
fyrirbæri sem hefur marga fleti. Trú er mis mikilvæg fyrir fólk og fyrir suma hefur hún
ekkert vægi. Trú er svo margslungin að kannski má segja að hægt sé að trúa á allt. Ég
get ekki sagt að ég sé mikill aðdáandi Biebers þó mér finnst tónlistin hans alls ekki
slæm. Ég var um tvítugt þegar hann kom fyrst fram á sjónarsviðið og því talsvert eldri
en markhópurinn, til þess að falla algjörlega fyrir honum og tónlistinni hans. Það er að
mínu mati afar áhugavert að skoða átrúnaðargoðið Justin Bieber út frá sjónarhorni
trúarlífsfélagsfræðinnar og því valdi ég þetta viðfangsefni fyrir ritgerðina mína.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
forsiða_sigurlin.pdf | 117.63 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
ritgerd_sigurlin1.pdf | 325.04 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna |