Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15291
Eldri rannsóknir sýna að meirihluti almennings hefur talsverða þekkingu á viðfangsefni sálfræðinnar og störfum sálfræðinga, bæði hinnar vísindalegu og klínísku hliðar. Almenningur ruglar þó gjarnan störfum sálfræðinga saman við störf geðlækna. Í þessu verkefni er gerð grein fyrir tveimur rannsóknum um þekkingu almennings á störfum sálfræðinga. Fyrri rannsóknin er eigindleg, en sú seinni megindleg. Markmið með fyrri rannsókninni var að afla hugmynda fyrir samningu spurningalista sem lagður var fyrir þátttakendur í seinni rannsókninni. Í seinni rannsókninni voru lagðir fyrir þrír mismunandi spurningalistar fyrir þrjá úrtakshópa, fyrsta árs nema í sálfræði við Háskóla Íslands, útskrifaða nemendur og almenning. Athugað var hvort þekking almennings sé frábrugðin þekkingu sálfræðinema og útskrifaðra á sálfræði og störfum sálfræðinga. Einnig var tilgangurinn með athugunum að kanna hvað almenningur telur vera megin mun á störfum sálfræðinga og geðlækna. Við teljum mikilvægt að kanna þetta því ef sýn almennings á sálfræði er skekkt á einhvern hátt þá gæti það haft í för með sér neikvæð áhrif á störf sálfræðinga. Meginniðurstöður rannsóknarinnar voru þær að almenningur er haldinn töluverðum ranghugmyndum um viðfangsefni sálfræðinnar og hefur frekar einsleita mynd á störfum sálfræðinga. Það er því ástæða til þess að bregðast við og reyna að grípa til ráðstafnana til að uppræta þessar ranghugmyndir og upplýsa almenning betur um störf sálfræðinga.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Viðhorf og þekking almennings og sálfræðinema á sálfræði og störfum sálfræðinga.pdf | 1.88 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |