Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1544
Hægt er að nota kennsluaðferðir í leikrænni tjáningu í bland við viðfangsefni í íslensku til þess að ná fram námsmarkmiðum sem snúa að framsögn og tjáningu. Upplagt er að vinna með þessar kennsluaðferðir út frá þjóðsögum.
Í verki þessu fræðast lesendur um þjóðsögur almennt og um gildi leiklistar í skólastarfi. Að því loknu er að finna kennsluáætlun sem unnin er út frá þjóðsögunum Valtýr á grænni treyju og Axlar-Björn. Áætlunin spannar 18 kennslustundir, þrjár til fjórar vikur í skólastarfinu. Kennsluaðferðirnar eru fjölbreyttar og vonandi skemmtilegar og reyna á þætti sem snúa að framsögn og tjáningu, en þeir þættir vilja oft verða útundan í skólastarfinu. Þær kennsluaðferðir sem notaðar eru í þessu verki eru umræður, skapandi ritun, kyrrmyndir, skrifað í hlutverki, kastljós, samviskugöng, viðtöl og hugarflug með leiðsögn. Auk þess kynnast nemendur ýmsum hugtökum úr bókmenntafræði sem tengjast sögum og ljóðum. Lögð er áhersla á að kennsluaðferðirnar séu vel útskýrðar og á hvaða kennari sem er að geta unnið út frá áætluninni burtséð frá kunnáttu hans á sviði leikrænnar tjáningar.
Lykilorð: Þjóðsögur í skólastarfi, leikræn tjáning í skólastarfi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
(Microsoft Word - Lokaverkefni - fors.pdf | 48.96 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
(Microsoft Word - Lokaverkefni..Irena o.pdf | 378.71 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
(Microsoft PowerPoint -.pdf | 241.46 kB | Opinn | fylgiskjal III | Skoða/Opna |