is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1545

Titill: 
  • Læsi og lestrarkennsla : fræðileg umfjöllun um læsi og lestrarkennslu ásamt skoðanakerfi höfundar um lestrarkennslu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þetta verkefni er unnið sem lokaverkefni til B.Ed. gráðu í grunnskólakennarafræðum við Kennaraháskóla Íslands vorið 2008. Þessi ritgerð er í senn heimildarritgerð um læsi og lestrarkennslu og hugmyndabanki að því hvernig megi vinna með stafi í byrjendakennslu. Einnig gerir höfundur grein fyrir eigin skoðanakerfi um lestrarkennslu. Fyrst er fjallað um nokkur hugtök sem skipta máli í tengslum við lestrarkennslu. Síðan er fjallað almennt um læsi. Í framhaldinu er fjallað sérstaklega um lestur og ritun og þróun á hvoru tveggja. Þá er vikið að umfjöllun um lestrarkennslu og lestrarkennsluaðferðir. Fjallað er sérstaklega um hljóðaaðferðina og lestur á talmálsgrunni (LTG). Næst er gerð grein fyrir því hvernig kennarar byggja upp skoðanakerfi sín og í framhaldi gerir höfundur grein fyrir eigin skoðanakerfi um lestrarkennslu. Í lok ritgerðarinnar er síðan fyrrnefndur hugmyndabanki höfundar með hugmyndum að því hvernig megi vinna með stafi í byrjendakennslu.
    Lykilorð: Læsi, lestur, ritun, lestrarkennsluaðferð, hljóðaðferð, lestur á talmálsgrunni, LTG, skoðanakerfi kennara, stafakennsla, byrjendakennsla, lestrarkennsla, hugmyndabanki.

Athugasemdir: 
  • Grunnskólabraut
Samþykkt: 
  • 3.7.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1545


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Læsi og lestrarkennsla.pdf1.31 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna