Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1551
Notkun leikja sem kennsluaðferð í byrjendakennslu er heitið á eftirfarandi ritgerð sem er lokaverkefni til B.Ed.-prófs við Kennaraháskóla Íslands. Viðfangsefni og tilgangur þessarar ritgerðar var að skoða hvernig leikur geti nýst sem kennsluaðferð. Við skrif á þessari heimildarritgerð einblíndu höfundar á elsta árgang leikskólabarna og yngsta árgang grunnskólabarna. Skoðaðar voru kenningar þriggja þekktra fræðimanna, Dewey, Gardner og Vygotsky með sérstakri áherslu á hugmyndir þeirra um áhrif leikja á nám barna. Einnig var kannað hvernig kenningar þeirra styðja mikilvægi leikja barna til náms. Samhliða var skoðað hvernig hægt væri að nýta leiki í byrjendakennslu. Jafnframt þessu voru settar fram hugmyndir um nýtingu leikja í ákveðnum kennslugreinum í byrjendakennslu. Ritgerðin er byggð á umfangsmiklum heimildalestri. Niðurstöður sýna að yngstu nemendur grunnskóla eiga auðveldara með að takast á við þær breytingar að fara frá leikskóla yfir í grunnskóla ef leikir eru nýttir sem kennsluaðferð í skólastofunni.
Lykilorð: Byrjendakennsla, kennsluaðferð, leikir, yngsta stig.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Notkun leikja sem kennsluaðferð í byrjendakennslu-heild.pdf | 409.59 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |