is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Listaháskóli Íslands > Sviðslistadeild / Department of Performing Arts > Lokaverkefni (BA) / Final projects (BA) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15538

Titill: 
  • Getur dans- og hreyfimeðferð haft jákvæð og gagnleg áhrif á einstaklinga með geðhvarfasýki?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Einstaklingar með geðsjúkdóminn geðhvarfasýki fá svokölluð „köst“ sem geta verið maníuköst, þunglyndisköst eða sveiflast á milli þeirra tveggja. Manían getur t.d. lýst sér sem ofurgleði, einstaklingar tala hratt, fá meiri skynjun, sumir ofskynjanir og geta vaðið úr einu í annað. Á þunglyndistímabilum geta einstaklingar upplifað mikla þreytu, litla sem enga orku eða löngun, venjur geta breyst og sumir íhuga sjálfsvíg. Sveiflurnar eru mjög mismunandi hjá einstaklingum og geta reynt mikið á andlega jafnt sem líkamlega líðan.
    Dans - og hreyfimeðferðir hafa þróast mikið á síðustu árum og telja þjálfarar að þær hjálpi einstaklingum að finna t.d. sjálfstraust, vellíðan, innri frið, meðvitund um eigin líkama og sál jafnt sem meðvitund um aðra í kringum sig. Hefur það sýnt sig að þegar einstaklingar hreyfa sig og dansa leysist endorfin í líkamanum þeirra sem veldur vellíðan. Meðferðirnar eru margar og allar sérstakar á sinn hátt með mismunandi áherslur.
    Erfitt er að finna nákvæmlega hvað hentar best við geðhvarfasýki, eitt hentar einum og annað öðrum en dans – og hreyfimeðferð gæti hugsanlega verið ein aðferðin þar sem í meðferðinni er unnið að mörgum þáttum sem gætu gagnast vel fyrir einstaklinga með geðhvarfasýki.

Samþykkt: 
  • 5.6.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15538


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
RITGERÐIN TILBUIN!.pdf229.03 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna