is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Ráðstefnurit > Söguþing Sagnfræðistofnunar >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15610

Titill: 
  • Saga sigurvegaranna. Kommúnistahreyfingin á Íslandi og söguskoðun kalda stríðsins
Útgáfa: 
  • Júní 2012
Útdráttur: 
  • Kommúnistahreyfingin á Íslandi var ein sú öflugasta í Vestur-Evrópu á 20. öld. Hvað kjörfylgi varðar komst enginn vestrænn kommúnistaflokkur með tærnar þar sem Kommúnistaflokkur Íslands og Sósíalistaflokkurinn höfðu hælana, að systurflokkunum í Frakklandi, Finnlandi Grikklandi, Ítalíu, Lúxemborg og Þýskalandi undanskildum. Íslenskir sagnfræðingar hafa hingað til veitt þessari staðreynd takmarkaða athygli. Þess í stað hefur pólitísk sagnaritun í anda kalda stríðsins verið áberandi, þar sem áhersla er lögð á sekt eða sakleysi bæði einstaklinga og stjórnmálaflokka. Hér verður því haldið fram að pólitísk sagnaritun af þessu tagi hafi takmarkað skýringargildi fyrir sögu íslenskrar vinstrihreyfingar og bent á aðrar rannsóknaraðferðir sem eru vænlegri til árangurs.

  • Útdráttur er á ensku

    The communist movement in Iceland was one of the most powerful of its kind in Western Europe of the 20th Century. In terms of voter support, no western communist party could even aspire to compare with the clout wielded by the Icelandic communist and socialist parties, with the exception of their counterparts in France, Finland, Greece, Italy, Luxemburg and Germany. Historians in Iceland have hitherto paid limited attention to this fact. Instead, historical studies of politics have conspicuously reflected the influence of the Cold War, thereby highlighting the guilt or innocence of both individuals and political parties. Here, it will be contended that such political writing has limited explicatory value for the history of the Icelandic leftist movement and other more promising research methods will be proposed.

Birtist í: 
  • Söguþing 2012. Ráðstefnurit. Sagnfræðistofnun, Reykjavík, 2013
Athugasemdir: 
  • Ritrýnd grein
Samþykkt: 
  • 7.6.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15610


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Saga sigurvegaranna.pdf203.26 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna