Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15624
Í þessari ritgerð verður fjallað um hugtakið geðveiki í sögu Einars Más Guðmundssonar, Englar alheimsins. Megin áherslan er á uppfærslu Þjóðleikhússins á sögunni en með ríka skírskotun í önnur listform sögunnar; bókina og kvikmyndina. Höfundur ritgerðar skoðar jafnframt stöðu áhorfandans í samhengi við leiksýninguna og hver sé í raun geðveikur.
Ritgerðin er í grófum dráttum þannig uppbyggð að fyrst eru skoðuð mörkin á milli raunveruleikans og ranghugmynda. Þaðan liggur leiðin í að skoða uppsetningu leikverksins sem sjálfstæðs listaverks en í framhaldi af því er sérstaða leikhússins skoðuð í samanburði við önnur listform sögunnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA_ritgerd_thorleifur_final_merged.pdf | 282.98 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |