is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15662

Titill: 
  • „Maður gerir ekki rassgat einn.“ Rannsókn á samfélagslegum áhrifum tónlistarhátíðarinnar „Aldrei fór ég suður“
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð verður fjallað um páskatímann á Ísafirði og þá aðallega tónlistarhátíðina „Aldrei fór ég suður“ sem fer fram yfir páskahelgi ár hvert á Ísafirði. Hátíðin hóf göngu sína árið 2004 og hefur allt umfang hennar farið ört stækkandi og er hún í dag einn stærsti viðburðurinn sem á sér stað á Vestfjörðum. Tekin voru fimm viðtöl í þessari rannsókn við einstaklinga sem tengjast hátíðinni allir á sinn hátt. Þá verður hugmyndin um samfélag og samfélagsvitund tekin fyrir út frá þeirri stemningu sem skapast hefur á páskum á Ísafirði í marga áratugi eða allt frá stofnun Skíðaviku þar árið 1935. Skíðavikan á Ísafirði var stofnuð til að fá til Ísafjarðar fólk á skíði og til að efla skíðamenningu Ísafjarðar.
    Í fyrsta kafla rannsóknarinar verða helstu hugtökin sem verða notuð í rannsókninni kynnt til sögunnar. Í öðrum kafla er stuttlega rætt um tónlistarlíf á Ísafirði. Í þriðja kafla er fjallað um páska og Skíðaviku og rætt um hlutverk þess á Ísafirði í gegnum árin. Í fjórða kafla mun ég beina sjónum að „Aldrei fór ég suður“ hátíðinni, upphaf hennar, virkni og ímynd í kringum hátíðina. Einnig verður sjálfboðavinnan sem fer fram í kringum hátíðina skoðuð og hvernig hátíðin kemur þeim Ísfirðingum sem ég tók viðtal við, fyrir sjónir.

Samþykkt: 
  • 10.6.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15662


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA RITGERÐ 2.pdf2.82 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna