is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15682

Titill: 
  • Að ganga menntaveginn klyfjaður hæfileikum og gáfum, bölvun eða blessun? : bráðger börn og nám
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi er lokaverkefni til M.Ed.-prófs við kennaradeild hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Viðfangsefni ritgerðarinnar er umfjöllun um bráðger börn; hvernig koma má til móts við þau í íslensku skólakerfi, taka tillit til námsþarfa þeirra og hvernig kennarar telja sig í stakk búna að mæta bráðgerum nemendum.
    Verkið er tvíþætt. Í upphafi er fjallað um bráðgervi eða einstaka hæfileika, hugmyndir og viðhorf til bráðgervis í gegnum aldirnar og helstu hugmyndir fræðimanna á þessu sviði. Sett er fram skilgreining á hugtakinu „bráðgervi“ auk þess sem birtingarmyndir bráðgervis eru tíundaðar. Greint er frá fræðilegri vitneskju um þarfir og kennslu bráðgerra barna.
    Í seinni hluta ritgerðarinnar er fjallað um rannsókn sem höfundur framkvæmdi og niðurstöður hennar. Rannsóknin var eigindleg en tekin voru viðtöl við kennara í fyrstu bekkjum grunnskólans. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að kennarar nýta sér einstaklingsmiðun við kennslu bráðgerra barna eins og þeir telja sér fært, fjölbreytta kennsluhætti með mismunandi hópaskiptingum og aðlagað námsefni að hluta. Kennarar bera þó við tímaskorti og lítilli fræðslu um greiningu og þarfir þessa nemendahóps og virðast því ekki koma nægilega til móts við bráðgera nemendur. Þá sýna niðurstöður einnig fram á þörf á frekari fræðslu um fjölbreytta kennsluhætti, markvissari einstaklingsmiðun og frekara samstarf og fræðslu fyrir foreldra.

  • Útdráttur er á ensku

    This is a thesis towards a Masters degree of Education at the University of Akureyri. The thesis deals with gifted children and how their needs are met within the school system in Iceland. The work is in two parts. In the first part ideas and attitudes towards gifted and talented children is dealt with and a look taken at the major scholars in the field. Furthermore, the concept of giftedness and its and its key aspects are defined. Knowledge
    about gifted students‘ needs and education is then discussed. In the second part the research conducted for this thesis and its conclusions are analyzed. The thesis was qualitative, in the form of interviews, and sought to elicit answers to how the teachers
    interviewed met gifted students‘ needs in school; which teaching materials and methods they thought were suitable and preferred. Also, the teachers were asked how well they thought they were equipped to meet the needs of this group of students. The results of the thesis revealed that teachers use differentiation as best they can, as well as diverse grouping methods and, in part, an adaptated curriculum. However, the teachers are concerned about the lack of time and education regarding diagnosis and the needs of this group of students and are thus not able to meet the academic needs of gifted students. The results also show a need for more instruction on diverse teaching methods, targeted and
    individualized differentiation, and further cooperation with parents.

Samþykkt: 
  • 11.6.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15682


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
HolmArna_lok_5.pdf1.2 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Heimildaskrá.pdf510.9 kBOpinnHeimildaskráPDFSkoða/Opna