Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15735
Í þessari ritgerð er uppsetning Þjóðleikhússins á Englum alheimsins í leikgerð Þorleifs Arnar Arnarssonar og Símonar Birgissonar skoðuð með kenningar Brechts í forgrunni. Ákveðnar senur eru skoðaðar og reynt að grafast fyrir um það hvað er á seyði í þeim út frá tækni Brechts og hvaða samfélagslegu skilaboð felist í þeim. Einnig eru skoðaðir nokkrir aðrir þættir. Má þar nefna Engla alheimsins bæði söguna og kvikmyndina, þá verður nokkuð farið í ævi og aðferðir Brechts og leikstjóri sýningarinnar kynntur lauslega.
Að hluta til byggist ritgerðin á persónulegri upplifun höfundar á umræddri sýningu og einnig félagslegum þáttum sem höfundur greinir bæði í viðtökum á tiltekinni æfingu verksins svo og í meðferð efnisins – leikgerðinni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hildur ba2-2.XXXFINALLpdf.pdf | 255.94 kB | Lokaður |