is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15759

Titill: 
  • Rannsókn á vali framhaldsskólanema á Akureyri á háskólum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar ritgerðar var að finna hvað veldur mun á ásókn nemenda Menntaskólans á Akureyri (MA) og Verkmenntaskólans á Akureyri (VMA) í Háskólann á Akureyri (HA) og hvort munurinn sé þess eðlis að hægt sé að breyta honum með markaðsaðgerðum. Það eru tveir framhaldsskólar á Akureyri, MA og VMA og einn háskóli, HA. Það munar 100% á nýskráningum nemenda í HA en tvöfalt fleiri koma úr VMA en MA. Niðurstöður sýna að nemendur skólanna eiga margt sameiginlegt en það sem greinir þá að er menntun foreldra þeirra, líkur á því að þeir vilji fara í skiptinám á meðan á námi þeirra stendur, hversu vel þeir telja HA henta og mat þeirra á hversu líklegt er að þeir fari í HA.
    Rannsakandi telur að flókið samspil margra þátta valdi mun á ásókn nemenda og taki langan tíma að breyta. Svo virðist sem nemendur MA hafi fyrirframákveðnar skoðanir um skólannog hvort þeir vilji fara þangað. Telur hann að ævintýragirni hafi þar djúpstæð áhrif. Líkt og tilhneiging til að taka sér frí á milli framhaldsskóla og háskóla er einnig tilhneiging til að vilja flytja frá Akureyri og prófa eitthvað nýtt. Áhugasvið nemenda skólanna er mismunandi og erfitt að breyta því en það þyrfti að sýna þeim nemendum sem flytja frá Akureyri til að sækja sömu menntun og býðst í HAfram á að þeir geta verið í heimabyggð, fengið góða menntun ásamt því að fara erlendis í skiptinám og svalað þannig ævintýragirni sinni. Þessi markaðssetning ásamt mikilli vinnu í innri markaðssetningu gæti virkað vel til að minnka mun milli skóla og fjölga nýskráningum nemenda úr MA að mati höfundar.

  • Útdráttur er á ensku

    This thesis’s objective is to point out what differs in Akureyri’s
    secondary education(‘s) students when it comes to choosing higher
    education and whether the difference is changeable by marketing
    efforts. There are two secondary education schools in Akureyri,
    Menntaskólinn á Akureyri (MA) and Verkmenntaskólinn á Akureyri
    (VMA), and one university, University of Akureyri (HA). The
    difference in enrollment is that students from VMA are two times more likely to enroll than students from MA. The results show that the schools have more in common than not but what differs is their parent’s higher education, whether they want to do exchange programs while they are in university and how they feel HA
    will suit them and the likelihood of them enrolling. The researcher thinks that what causes the difference is complicated
    and will take time and hard work to change. Students in MA appear to have predetermined opinions about HA and whether they want to
    enroll. The researcher thinks that their need for adventure has deep effect of them. Just like there is a tendency to take a year off after secondary school there is a tendency to want to move from Akureyri and try something new. The student’s interests are not going to be changed but students who choose to move from Akureyri for the same education as HA offers need to see the benefits of getting good education, staying in their hometown and also being able to travel and be adventurous using the exchange program the school offers. Marketing in that way as well as putting a lot of work to internal marketing can change the difference in enrollment.

Samþykkt: 
  • 14.6.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15759


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni-Lísbet.Hannesdóttir.pdf737.35 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna