Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1575
Megintilgangur þessa verkefnis er að draga fram lykilþætti í þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra á Vestfjörðum. Skoðaðar eru skilgreiningar á hlutverkum þeirra sem veita þjónustu í ljósi gildandi laga og þeirra hugmyndafræðilegu gilda sem þau grundvallast á. Sérstök áhersla var lögð á að skoða þjónustuna út frá almennum mannréttindum og þróun velferðakerfisins. Fjallað er um sögulega þróun í málefnum fatlaðra á Vestfjörðum í tengslum við þróun hugmyndafræðinnar og breytingar á lögum um málefni fatlaðra. Skoðuð er framtíðarstefna stjórnvalda varðandi málaflokkinn og þjónustu sveitarfélaganna á svæðinu.
Í verkefninu er gerð könnun á viðhorfum foreldra fatlaðra barna til þeirrar þjónustu sem í boði er. Tilgangurinn var að fá þeirra sýn á félagslega þjónustu við fötluð börn til þess að niðurstöður mætti nýta til þess að styðja við umbætur. Var megindleg aðferðarfræði notuð við úrvinnslu á gögnum. Niðurstöður könnunarinnar sýndu fram á að foreldrar eru almennt ánægðir með þá þjónustu sem er í boði á svæðinu. Aftur á móti fannst mörgum þeirra upplýsingar um réttindi og þjónustuúrræði ekki aðgengilegar.
Verkefninu fylgir upplýsingarit sem ætlað er að vera leiðarljós foreldra barna sem grunur leikur á að séu með þroskafrávik. Ritinu er ætlað að verða þeim til aukinna þæginda og veita upplýsingar um þá þjónustu sem í boði er á Vestfjörðum og á landsvísu.
Lykilorð: Upplýsingarit, foreldrar, Vestfirðir, Fötlun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Upplýsingarit.pdf | 3.92 MB | Opinn | Upplýsingarit | Skoða/Opna | |
Fylgiskjöl.pdf | 444.99 kB | Lokaður | Fylgiskjöl | ||
Hvert á að leita.pdf | 907.54 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |