is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15777

Titill: 
  • Olíunotkun á Íslandi : iðnaður, orkuvinnsla og upphitun : varaafl viðbragðsaðila
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Olía er víða um heim nýtt til iðnaðar, orkuvinnslu og upphitunar. Vel er fylgst með olíunotkun í heiminum og á Íslandi gildir það sama þrátt fyrir að olíunotkun sé sáralítil hér á landi samanborið við mörg önnur lönd. Margar ástæður valda því að nauðsynlegt er að fylgjast með olíunotkun landa og hefur Orkustofnun það hlutverk með höndum hér á landi. Einn hluti olíunotkunarinnar er orkuvinnsla en þar sem megnið af raforku er framleitt með jarðvarma eða vatnsafli fer stór hluti þeirrar olíu sem notuð er í orkuvinnslu til framleiðslu á varaafli. Vegna þess hve raforka er okkur nauðsynleg við margar daglegar athafnir er mikilvægt að nægt varaafl sé til staðar til að halda uppi þeim lífsmáta sem við eigum að venjast.
    Markmið þessa verkefnis var tvíþætt:
    1. Að greina gögn frá notendum olíu í iðnaði, orkuvinnslu og upphitun og bera þau saman við gögn frá olíufélögunum til að sjá hvort hægt er að styðjast við gögn olíufélaganna til að fá raunhæfa mynd af olínotkun í ofangreindum flokkum.
    2. Að afla gagna um varaafl viðbragðsaðila og meta starfhæfni þeirra við víðtækt og/eða langvarandi rafmagnsleysi, til að mynda vegna óveðurs eða annarra náttúruhamfara.
    Helstu niðurstöður verkefnisin eru:
    1.a. Gögn olíufélaganna eru nokkuð nákvæm og því er hægt að notast við þau til að áætla gróflega heildarolíunotkun í iðnaði og orkuvinnslu
    1.b. Ekki var hægt að staðfesta nákvæmni í gögnum olíufélaganna fyrir olíunotkun til upphitunar vegna skorts á gögnum en ekki var hægt að afla allra nauðsynlegra gagna á verktíma verkefnisins
    2.Viðbragðsaðilar eru misvel búnir aðgengi að varaafli ef á þarf að halda. Víða mætti setja upp einkarafstöðvar á starfsstöðvum viðbragðsaðila og auk þess eru birgðir fyrir hverja stöð mjög mismunandi og þar af leiðandi einnig mögulegur vinnslutími stöðvanna. Úr því mætti bæta, t.d. með viðmiðunarreglum eða verklagsreglum.

  • Útdráttur er á ensku

    Use of oil is very important to most countries in the world. That includes Iceland, although most of the energy produced and used here in Iceland is either geothermal or hydroelectric. This report focuses on the use of oil for industry, energy production and heating. Despite the fact that most of Iceland‘s electricity
    comes from other sources, oil is still very important as a fuel for backup generators in case the national electrical grid, for some reason, fails to provide the necessary power.
    This report has a double aim:
    1. To analyse usage data from users in industry, energy production and heating and compare it to data from the oil companies to see if data from the oil companies can be used as a reliable source for the use of oil in the aforementioned categories.
    2. To collect data from emergency response units across Iceland and evaluate their capability to operate during widespread power outages caused, for example, by extreme weather conditions or natural catastrophes.
    The main conclusions in the case of industry and power production are:
    1.a. Data from the oil companies is fairly accurate and can be used to broadly evaluate real oil use.
    1.b. Heating data has not been verified for accuracy as the necessary information could not be gathered in the work period of this report.
    2. The availability of backup power for emergency response units differs widely across the country and units are not equally prepared for effective operation during power outages. This may require a joint effort by all units concerned, to assess the differences and find solutions to address the problem.
    Keywords: Oil, fuel, power production, backup power, emergcency response.

Samþykkt: 
  • 14.6.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15777


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni-Olivera Ilic.pdf948.93 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna