is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1581

Titill: 
  • Upplýsingatækni í þágu fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra í dreifðum byggðum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessu verkefni kannaði ég hvernig og við hvaða aðstæður hægt væri, með aðstoð upplýsingatækni, að styðja betur fjölskyldur fatlaðra barna í dreifðum byggðum og auka þekkingu hjá starfsmönnum sem veita þeim þjónustu. Markmiðið var að kanna hvort hægt væri að bæta þjónustu við þennan hóp og koma leiðbeiningum og ráðgjöf frá sérfræðingum og ráðgjafaraðilum á framfæri á nútímalegan og skilvirkan hátt.
    Niðurstöður benda til þess að upplýsingatæknin geti komið til móts við ýmsar þarfir fjölskyldna fatlaðra barna. Má þar helst nefna að nýta megi þá tækni sem völ er á, á sviði samskiptalausna til að auka og bæta samhæfingu þjónustunnar svo og ráðgjöf, fræðslu og stuðning á ýmsa vegu. Einnig er þörf á að leita leiða, með hjálp upplýsingatækninnar, til að auka möguleika foreldra á Austurlandi til að vera í meiri samskiptum við aðra foreldra fatlaðra barna og foreldrafélög á Höfuðborgarsvæðinu.
    Lykilorð: Fatlaðir, börn, fjölskyldur, upplýsingatækni, dreifbýli.

Athugasemdir: 
  • Þroskaþjálfabraut
Samþykkt: 
  • 4.7.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1581


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
08lokavekefni5mai.pdf306.29 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna