Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1584
Verkefni þetta fjallar um unglinga, þroska þeirra, vináttu og frístundastarf. Í tengslum við frístundastarf unglinga er starfsemi nokkurra ungmennahúsa skoðuð. Frístundastarf unglinga almennt sem og unglinga í Mosfellsbæ er skoðað í þessu verkefni. Send var stutt tölvupóstkönnun til allra 16 og 17 ára unglinga í Mosfellsbæ, með aðstoð OUTCOME kannanakerfisins, og þeir spurðir út í eitt og annað er viðkemur skólasókn, frístundastarfi og ungmennahúsi í Mosfellsbæ. Niðurstöður könnunarinnar voru í stuttu máli þær að 16 og 17 ára unglingar í Mosfellsbæ virðast duglegir að sækja skipulagt frístundastarf. Engu að síður finnst þeim vanta frekar upp á félagsstarf fyrir þá í bæjarfélaginu og meirihluti þeirra telur að þeir myndu sækja ungmennahús væri það til staðar.
Samkvæmt rannsóknum er skipulagt frístundastarf talið vera ein besta forvörn sem völ er á fyrir unglinga gegn ýmis konar áhættuhegðun sem getur leitt þau af braut. Ungmennahús bjóða upp á skipulagt frístundastarf og eru víða um land hluti af forvarnarstarfi sveitarfélaga. Með forvarnir og mikilvægi skipulagðs frístundastarfs að leiðarljósi er reynt að sýna fram á mikilvægi þess að unglingar í Mosfellsbæ hafi áfram aðgang að frístunda- og félagsstarfi þegar á framhaldsskólaaldur er komið líkt og félagsmiðstöðvar fyrir grunnskólanema bjóða upp á.
Lykilorð: Unglingar, frístundastarf, ungmennahús.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Unglingar og frístundir.pdf | 1.9 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |