is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1592

Titill: 
  • Kynferðisbrot gegn börnum
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Kynferðisbrot gegn börnum hafa verið áberandi í þjóðfélagsumræðunni á liðnum
    árum. Ljóst er að þetta er meðal umtöluðustu málaflokka hér á landi og má telja
    að allir hafi nokkra skoðun á honum. Dómstólar hafa verið gagnrýndir fyrir væga
    dóma í málum þar sem að karlmenn misnota börn kynferðislega og þykja þeir oft
    á tíðum sleppa með væga refsingu. Höfundur telur að brýnt sé að líta nánar á
    þennan málaflokk og rannsaka feril þessara mála fyrir dómstólum með það fyrir
    augum að skoða sérstaklega sönnunarbyrði og áhrif afnáms fyrningarfrests á
    alvarlegustu kynferðisbrotunum sem beinast gegn brotaþolum yngri en 18 ára.
    Enn fremur verður hér rætt um sérstöðu þessara mála sem felst í því að mikill
    aðstöðumunur er á milli brotaþola og brotamanns. Verður litið sérstaklega til þess
    hvernig löggjafinn bregst við þessum aðstöðumun og hvort að börnum er gerð
    aukin vernd í lögum af þeirri ástæðu. Rætt verður um fyrirbyggjandi aðgerðir, rétt
    brotaþola og brotamanns ásamt því að refsiramminn í kynferðisbrotamálum verður
    skoðaður.
    Taldi höfundur brýnt að taka saman upplýsingar um þennan málaflokk og skoða
    með gagnrýnum hætti þær breytingar sem gerðar voru á lögunum árið 2007. Ljóst
    er að um umtalsverðar breytingar var að ræða og ekki full samstaða um þær á
    Alþingi.

Samþykkt: 
  • 8.7.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1592


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ML ritgerd.pdf845.13 kBOpinnKynferðislegt ofbeldi gegn börnum-heildPDFSkoða/Opna