Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1603
Í ritgerð þessari verður reynt að varpa ljósi á þjóðernishyggju á Íslandi og birtingarmynd
hennar í íslenskum kvikmyndum.
Í 1. kafla er skilgreiningu hugtaksins þjóðernishyggja gerð skil í bæði víðri og þröngri
merkingu orðsins. Farið er yfir helstu kenningar Hobsbawm og Gellner í þessum efnum og
reynt að varpa ljósi á það hvað þjóðernishyggja er í raun og veru og hvernig hún birtist í
táknum og myndum, bæði tilbúnum og náttúrulegum. Íslensk þjóðernishyggja og sérkenni
hennar eru þá sérstaklega könnuð og reynt er að varpa ljósi á þau tákn, myndir og minni sem
þykja sérstaklega íslensk.
Í 2.kafla verður farið yfir sögu kvikmyndaframleiðslu Íslendinga síðustu 100 árin þar
sem reynt verður með sögulegu ágripi að skýra nokkra af þeim þáttum sem höfðu áhrif á
kvikmyndagerð fyrstu áratugina og þá þróun sem átti sér stað í kvikmyndagerð landsmanna
allt til ársins 2007.
Í 3. Kafla verður svo rætt um hið þjóðlega í kvikmyndum og hvernig þjóðir, og þá
sérstaklega Íslendingar hafa speglað sig í kvikmyndum sínum. Birtingarmynd íslenskrar
þjóðernishyggju og þau tákn og erkitýpur sem íslenskir kvikmyndagerðarmenn hafa dregið
upp á síðustu áratugum verða greind og krufin með dæmum og sérstakri umfjöllun um valdar
myndir áratuganna frá 1949 til 2007.
Kafli 4, inniheldur samantekt og niðurstöður mínar, ásamt almennum vangaveltum
um staðalímyndir og séríslensk einkenni þjóðarinnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Birtingarmynd Þjóðernishyggju í Íslenskum Kvikmyndum.pdf | 311.48 kB | Opinn | "Birtingarmyndir þjóðernishyggju í íslenskum kvikmyndum, 1949-2007"-heild | Skoða/Opna |