Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16192
Markmið þessarar ritgerðar er að rannsaka hvort það sé fjárhagslegur ávinningur fyrir sveitarfélög að innleiða Hjallastefnuna í leikskóla sína. Ritgerðin byggir meðal annars á ársreikningum Snæfellsbæjar, Borgarbyggðar og Hjallastefnunnar ehf., auk viðtala við aðila á þeirra vegum.
Við rannsóknina var notast við stuðulinn barngildi og leitast var við að finna út hver væri meðaltalskostnaður á hvert barngildi. Barngildið hefur mishátt vægi og fer það eftir aldri barnanna. Stuðullinn var margfaldaður með fjölda barna á leikskólum fyrrnefndra aðila á árunum 2009-2011. Sá fjöldi barngilda í hlutfalli við brúttó rekstrargjöld rekstraraðilanna sýndi meðaltalskostnað á hvert barngildi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
104.12.0.BSRG_-_Bjarney_Jörgensen_010366-5779.pdf | 1.97 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |