is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > BSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþrótta-, iðn- og tæknifræði -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16241

Titill: 
  • Áhrif skynmyndaþjálfunar á skotform og vítanýtingu hjá yngri flokka leikmönnum í körfuknattleik
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Skynmyndaþjálfun hefur vakið mikla athygli síðustu ár og virðist vera áhrifarík leið til að bæta frammistöðu. Rannsókn var framkvæmd í þeim tilgangi að skoða áhrif skynmyndaþjálfunar á vítaskot og skotform yngri flokka leikmanna í körfuknattleik. Þátttakendur í rannsókninni voru 29 stúlkur á aldrinum 11 til 15 ára með meðalaldurinn 12,6 ár. Stúlkunum var skipt í samanburðarhóp (14) sem fékk hefðbundna þjálfun og tilraunarhóp (15) sem æfði sig bæði með hefðbundinni þjálfun og skynmyndaþjálfun. Rannsóknin stóð yfir í sjö vikur og voru 11 mælingar skráðar fyrir vítanýtingu, ásamt því að skotform þátttakenda var tekið upp bæði í upphafi og lok rannsóknar. Niðurstöður leiddu í ljós að hvorugur hópurinn sýndi framfarir á vítanýtingu né skotformi á þessu tímabili. Þó ber að taka fram að vítanýting tilraunarhóps batnaði um 1,87 stig að meðaltali en vítanýting samanburðarhóps versnaði um 0,71 stig að meðaltali. Mögulegt er því að þátttakendur í rannsókninni hafi verið of fáir, sem leiddi til þess að marktektarpróf greindu ekki mun á hópunum. Eins þótti hugsanlegt að framfararskalinn hafi ekki verið nægilega sértækur til að greina mun á hópunum. Áhugavert þykir því að endurtaka rannsóknina og huga að þeim annmörkum sem greint var frá.

Samþykkt: 
  • 22.8.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16241


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Bryndís Hanna Lokaútgáfa4.pdf713.18 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna