Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16245
Körfuknattleikur var fundinn upp í Bandaríkjunum af James Naismith árið 1891. Körfuknattleikur var fyrst kenndur á Íslandi í Íþróttakennara-skólanum á Laugarvatni af Braga Magnússyni sem var kennari við skól-ann árið 1946. Næring og svefn er mikilvægur þáttur þegar kemur að því að auka frammistöðu íþróttamanna. Þeir þurfa að borða næringarríka og fjölbreytta fæðu. Íþróttasálfræði er orðinn stór þáttur í þjálfun afreks-íþróttamanna. Með markmiðssetningu geta íþróttamenn einblínt á það sem skiptir máli í þjálfuninni. Nauðsynlegt er að gera bæði langtíma- og skammtímamarkmið. Skynmyndir og sjálfstal getur hjálpað til við að laga ýmsa tækni og hefur góð áhrif á frammistöðu. Körfuknattleiksmenn þurfa að hafa mikinn styrk, hraða og vera snöggir í hreyfingum til þess að geta verið fljótari í vörninni og gert allar stefnubreytingar hraðari. Með styrktarþjálfun geta körfuknatt-leiksmenn aukið stökkkraft sinn til muna sem er mjög góður kostur í íþróttinni. Með því teygja vel er hægt að draga úr líkum á meiðslum og auka þar með hreyfanleika í liðum sem hefur áhrif á allan hreyfiferilinn.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Fræðilegi kaflinn tilbúin.pdf | 218.97 kB | Opinn | Skoða/Opna | ||
Ekkert nema net Körfuknattleiksbók.pdf | 5.83 MB | Opinn | Skoða/Opna |