Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16251
Um árabil hefur öflugt starf verið unnið í körfuknattleiksdeild Keflavíkur. Árangur kvennaliða körfuknattleiksdeildarinnar hefur verið sérstaklega eftirtektarverður undanfarin ár. Í þessari ritgerð verður árangur liðanna skoðaður aftur í tímann auk þess sem fjallað verður um sögu, stefnu og skipulag kvennakörfuboltans í Keflavík. Leitast verður við að kanna hvort eitthvað í skipulagi deildarinnar geti skýrt þennan góða árangur og þá staðreynd að stúlkur virðast heldur velja að iðka körfubolta en aðrar boltaíþróttir. Einnig verður stefna kvennakörfunnar í Keflavík borin saman við stefnu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ). Þar sem Keflavík er fyrirmyndarfélag samkvæmt viðmiðum ÍSÍ er að lokum farið í saumana á því hvort félagið fari raunverulega eftir þeirri stefnu sem það gefur sig út fyrir að fylgja.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Saga, stefna og skipulag kvennakörfuboltans í Keflavík.pdf | 1.41 MB | Lokaður til...20.10.2133 | Heildartexti |