is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > MEd/MPM/MSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþróttafræðideild -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16308

Titill: 
  • Það er miklu oftar sem það batnar : áhrif bjartsýni og rökvillna á áreiðanleika verkefnastjóra
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessu verkefni er sjónum beint að ómeðvituðum mannlegum þáttum sem geta leitt til þess að áreiðanleiki verkefnastjóra verður minni en ásættanlegt er. Horft er til þess hversu hátt hlutfall verkefna mislukkast og velt er upp spurningum um ástæður þess. Farið er yfir nokkrar rökvillur eða áætlanagildrur og sýnt fram á hvernig þær geta bjagað ákvarðanatöku og gerð áætlana. Meðal þessara gildra er akkerisbinding (anchoring) þar sem óskyldar upplýsingar geta haft áhrif á ákvörðun og kenningin um horfur (prospect theory) sem sýnir fram á að áhættusækni er mun meiri þegar kemur að tapi en gróða. Áhrif bjartsýni á mannshugann er skoðuð og sýnt fram á að þrátt fyrir mjög jákvæð áhrif getur hún leitt menn til óraunhæfra ákvarðana. Tekin voru nokkur viðtöl við fólk sem starfar að áætlanagerð, viðhorf þess skoðuð og rýnt í jarðveg fyrir rökvillur og bjartsýni á Íslandi. Í ljós kom að margt má betur fara en ástandið er þó langt frá því að vera alslæmt.

  • Útdráttur er á ensku

    This thesis focuses on the unconscious human factors that can lead to decreased reliability among project managers subsequently leading to failed projects. It examines how and why projects fail. Some logical flaws and planning traps have been reviewed, and demonstrated how they can distort decision-making and planning. One of these traps is anchoring when unrelated information can have influence on decisions. Another is Prospect Theory, which demonstrates that the risk is much higher when it comes to losses than gains. Effects of optimism on the human mind is examined and demonstrated that despite the very positive impact it can lead people to unreasonable decisions. During this project several interviews have been conducted with people involved in planning, their attitude has been inspected, and examined the ground for logical flaws and optimism in Iceland. In conclusion, it turned out that many things can be done better but the situation is far from being poor.

Samþykkt: 
  • 29.8.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16308


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
JPH.pdf278.44 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna