Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16538
Ritgerð þessi fjallar um hvort íbúðarkaup séu raunhæfur kostur fyrir fólk sem er að kaupa í fyrsta skipti. Reynt verður að svara því hvort ríkið eða einkaaðilar eigi að sjá til þess að fólk komist inn á húsnæðismarkaðinn. Ungt fólk í dag hefur að jafnaði ekki mikið eigið fé á milli handanna til þess að leggja út fyrir íbúð. Mikið af fólki er að koma úr háskólanámi sem þýðir að margir eru með lán frá Lánasjóði íslenskra námsmanna á bakinu sem og önnur neyslulán. Leigumarkaðurinn virðist blasa við ungu fólki sem vill komast úr foreldrahúsum og eru jafnvel að missa námsmannaíbúðir sínar. Leigumarkaðurinn hérlendis hefur ekki þótt mjög aðlaðandi í augum þeirra sem leita að langtímaleiguhúsnæði. Eftir hrun bankanna margfaldaðist húsnæðisverð og aðgengi að lánsfé minnkaði. Lægra veðsetningarhlutfall hefur gert fyrstu kaupendum erfiðara fyrir að komast inná húsnæðismarkaðinn.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Karen_Ýr_Lárusdóttir_BS.pdf | 851.31 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |