is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16542

Titill: 
  • Samrunar sjávarútvegsfyrirtækja í Kauphöll Íslands: Hvað bjó að baki?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Á 10. áratug 20. aldar einkenndist Kauphöll Íslands fyrst og fremst af skráningum sjávarútvegsfyrirtækja og á tímabili hugðist kauphöllin sérhæfa sig sem markaður fyrir slík félög. Fljótlega uppúr aldamótum hrundu svo sjávarútvegsfyrirtækin útaf markaði á
    stuttum tíma og í dag stendur aðeins eitt eftir. Í þessari ritgerð verður varpað ljósi á þessa þróun þá sérstaklega með tilliti til samruna og yfirtöku. Gerð verður grein fyrir helstu tegundum samruna og hvaða hvatar liggja þar helst að baki. Einnig verða
    svokallaðar samrunabylgjur útskýrðar og hvernig þær verða til. Því næst er þróun sjávarútvegsfyrirtækja á markaði reifuð útfrá tölulegum gögnum. Samhliða því fer fram rannsókn á samrunum þeirra félaga sem á markaði voru. Rannsóknin er töluleg greining þar sem notast var einna helst við ársreikninga ásamt gögnum úr fræðigreinum. Tilgangur hennar er að kasta skýrari mynd á hvað bjó að baki. Niðurstöður ritgerðarinnar eru svo túlkaðar með hliðsjón af fyrrnefndri rannsókn og kenningum.

Samþykkt: 
  • 19.9.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16542


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Eggert Freyr Pétursson.pdf1.38 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna