is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16575

Titill: 
  • Áhrifavaldar gengisleiðni: Hagrannsókn með áherslu á íslenska hagsmuni
  • Titill er á ensku Influences on exchange rate pass-through: Economic research focusing on the interests of Iceland
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Á Íslandi hefur leiðni gengisbreytinga í verðlag mælst hærri en hjá mörgum samanburðarþjóðum og reynist það einkar óheppilegt þar sem landið býr við grunnan og sveiflukenndan gjaldeyrismarkað. Markmið rannsóknarinnar var að meta áhrifavalda gengisleiðni í neysluverð auk þess að bera saman gengisleiðni fyrir og eftir efnahagshrunið á Íslandi og upptöku landa á evru. Gerðar voru mælingar fyrir meirihluta OECD landanna og athugað svo hversu vel meðalverðbólga, meðalfólksfjöldi og gengisflökt skýrðu gengisleiðnina. Metin voru tvö VAR líkön, fyrra innihélt eingöngu verðbólgu og gengi sem innri breytur, en í seinna líkaninu var bætt við atvinnuleysi til þess að stýra fyrir slaka á vinnumarkaði.
    Niðurstöður gengisleiðnimælinganna voru í hærri kantinum og mældist meðal annars tveggja ára uppsöfnuð gengisleiðni fyrir Ísland 61% fyrir fyrra líkanið en 52% fyrir það seinna. Þegar var reiknuð meðalgengisleiðni fyrir mælingarnar var tveggja ára gengisleiðni á bilinu 28-30% og stemmdi þokkalega við fyrri mælingar. Jákvæð fylgni mældist fyrir meðalverðbólgu og gengisflökt við gengisleiðni, en engin marktæk tengsl mældust við meðalfólksfjölda.
    Gengisleiðni mældist hærri á Íslandi eftir efnahagshrunið 2008 fyrir bæði líkön. Aftur á móti voru síður afgerandi niðurstöður fyrir áhrif upptöku evru og lítið hægt að fullyrða byggt á þeim mælingum.

Samþykkt: 
  • 20.9.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16575


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ahrifavaldar_gengisleidni.pdf7.5 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna