Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/165
Tilgangur rannsóknarinnar: Tilgangurinn var að kanna hvaða áhrif hefur það á sálfélagslega líðan og sjálfsmynd kvenna sem hafa átt við sjúklega offitu að stríða að fara í maga-og garnahjáveituaðgerð: fá þær stuðning við það ferli og hvernig stuðningur kemur þeim best?
Maga- og garnahjáveituaðgerð er talin hafa jákvæð áhrif á sjálfstraust, viðurkenningu í samfélaginu og almennt betri líðan. Hins vegar getur aðlögun af svo yfirgripsmikilli breytingu verið tilfinningalega streituvaldandi.
Þátttakendur: Þátttakendur voru fimm konur 35 til 45 ára sem höfðu farið í aðgerð vegna sjúklegrar offitu. Gögnum í rannsóknina var aflað með viðtölum og þau unnin samkvæmt hugmyndafræði Vancouver-skólans í fyrirbærafræði.
Niðurstöður: Við úrvinnslu gagna var greiningarlíkan sett fram sem samanstóð af tveimur meginþemum og sex undirþemum. Fyrir aðgerðina var meginþemað slæm sjálfsmynd og undirþemun a) passar ekki inn í þjóðfélagið, fyrirbæri, b) fordómar, meiðandi ummæli, c) erfið ákvörðun að fara í offituaðgerð. Eftir aðgerðina var meginþemað bætt sjálfsmynd og undirþemun a) aukið þrek gefur þér frelsi og nýtt líf, b) er í réttri stærð fyrir þjóðfélagið, fellur inn í fjöldann/hópinn, c) óhrædd við að taka þátt og sýna sig á meðal fólks, hér er ég.
Í niðurstöðum kom fram hver sálfélagsleg líðan kvennanna var fyrir og eftir offituaðgerð og hvernig framkoma fólks í samfélaginu var gagnvart of feitum einstaklingum. Þær voru kallaðar nöfnum, það var ekki hlustað á þær, því þær voru ekki taldar geta haft skoðun á hlutunum. Ákvörðun um að fara í aðgerð var erfið og ekki endanlega tekin fyrr en á síðustu stundu. Niðurstaða rannsóknarinnar var að sálfélagsleg líðan og sjálfsmynd kvennanna batnaði við það að missa yfirþyngdina, en ekki í samræmi við þyngdartapið. Hefðu sumar viljað fá meiri stuðning þótt þær hefðu ekki áttað sig á því fyrr en eftir á. Niðurstöðurnar voru í samræmi við rannsóknir annarra. Rannsakendur draga þá ályktun að nauðsynlegt sé að geta boðið upp á ýmiskonar andlegan stuðning, því það sýndi sig að hafa áhrif á sálfélagslega líðan og sjálfsmynd kvennanna. Þær fengu aukna orku og nutu betur lífsins, þorðu að láta sjá sig og hættu að vera í felum. Þeim fannst þær ekki lengur vera of stórar fyrir samfélagið, hættar að vera fyrirbæri, komnar í rétta stærð fyrir þjóðfélagið og féllu inn í hópinn.
Lykilhugtök: Sjúkleg offita. Maga- og garnahjáveituaðgerð. Sálfélagsleg líðan. Sjálfsmynd.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
fyrirbaeri-heild.pdf | 2.95 MB | Takmarkaður | Úr fyrirbæri í rétta stærð fyrir þjóðfélagið - heild | ||
fyrirbaeri-e.pdf | 104.45 kB | Opinn | Úr fyrirbæri í rétta stærð fyrir þjóðfélagið - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
fyrirbaeri-u.pdf | 123.66 kB | Opinn | Úr fyrirbæri í rétta stærð fyrir þjóðfélagið - útdráttur | Skoða/Opna |