Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16601
Ormurinn sjálfur er lokaverkefni til B.ed – gráðu í grunnskólakennarafræði við Háskóla Íslands. Verkefnið inniheldur kennsluefni fyrir kennara og fræðilega greinargerð og er samið í tengslum við bókina Gauragang.
Í kennsluefninu eru sett fram verkefni sem eru ætluð til samþættingar í bókmenntum og leiklist. Verkefnin eru ýmist heildstæð leiklistarferli eða minni verkefni. Kennsluaðferðir leiklistar eru skilgreindar í kennsluefninu sjálfu og er ekki krafist formlegrar menntunar í leiklist til að vinna þessi verkefni með nemendum.
Í greinargerðinni er sýnt fram á tengsl fræða við notkun leiklistar í kennslu og kosti þess að samþætta leiklist og aðrar námsgreinar eins og til dæmis bókmenntir. Jafnframt er greinargerðin tengd við aðalnámskrá grunnskóla.
Að mati höfundar er notkun leiklistar í námi áhrifarík og nauðsynleg. Hún býður upp á fjölbreyttar aðferðir fyrir bæði kennara og nemendur. Hún gerir kennurum kleift að nálgast nemendur á ólíkan hátt og koma betur til móts við þarfir þeirra. Leiklist býður upp á yfirgripsmikla menntun sem dýpkar skilning nemenda og eflir ímyndunaraflið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
greinargerdin-pdf.pdf | 530.1 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
kennsluefnid-pdf.pdf | 807.86 kB | Opinn | Kennsluefni | Skoða/Opna |