Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16621
Í þessari ritgerð verður farið yfir sögu og þróun kennaramenntunar á Íslandi. Sérstaklega er gerð grein fyrir þeim breytingum sem hafa orðið á kennaramenntun á síðustu árum. Þessi rannsókn er viðtalsrannsókn, þar sem grunnurinn er frásögn tveggja viðmælenda, og hún er þannig byggð á persónulegum munnlegum heimildum. Ritgerðin er unnin í samstarfi við Miðstöð munnlegrar sögu. Í rannsókninni eru tekin viðtöl við tvo einstaklinga, sem unnu að nýskipan kennaranáms, Ólaf Jóhann Proppé fyrrverandi rektor við Kennaraháskóla Íslands og Ingvar Sigurgeirsson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Í viðtölunum segja þeir frá reynslu sinni og vinnu sem snýr að skólamálum. Útgangspunkur ritgerðarinnar er að fjalla um af hverju var þörf á að lengja kennaranámið um tvö ár. Hver var hugsunin og vinnan á bakvið þá ákvörðun? Viðtölin voru tekin upp í skóla við einn viðmælanda í einu, og þeir segja sögu sína án þess að vera truflaðir. Viðmælendur hittust ekki. Einnig er stuðst við ritaðar heimildir um íslenska skólasögu.
Lykilorð: Munnleg saga
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
B.Ed. ritgerð.pdf | 573.08 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |