Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16638
Viðfangsefni þetta er lokaverkefni höfundar til B.Ed. prófs við grunnskólakennaradeild Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Það er sett upp í tveimur hlutum; sem greinargerð og verkefnasafn. Hugmyndin að baki verkefnasafninu er að hægt sé að vinna ýmis ólík verkefni í myndmennt með áherslu á sjálfbærni.
Tilgangur verkefnisins er að glæða vitund nemenda um umhverfi sitt og ábyrgð þeirra á því. Jafnframt er verkefnasafninu ætlað að gefa skólafólki hugmyndir að endurnýtingu efnis í nærumhverfi skóla.
Í greinargerðinni er fjallað um hugtakið sjálfbærni og sjálfbærni í listum. Sjálfbærni og umhverfi er sett í samhengi og fjallað um þrjá listamenn sem eiga það sameiginlegt að vinna verk sín í nánum tengslum við umhverfið og náttúruna, en slík listsköpun tengist sjálfbærni.
Verkefnasafninu er skipt í tvo kafla. Í fyrri kaflanum er samansafn af hugmyndum að verkefnum sem byggja á endurvinnslu efnisafganga sem falla til í umhverfi okkar. Seinni kaflinn inniheldur verkefnahugmyndir sem byggja á notkun náttúruefna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Karólína B.Ed ritgerð 2013.pdf | 1.34 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |