Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16702
Hvernig hefur birtingarmynd Knattspyrnusambands Íslands verið í fjölmiðlum árin 2008 – 2010? Hefur hún verið jákvæð, neikvæð eða hlutlaus? Leitast er við að svara eftirfarandi spurningum í verkefninu. Dreifing frétta og greina eftir mánuðum er skoðuð en með henni sést hvort umfjöllun um Knattspyrnusamband Íslands hefur verið samfelld eða tengist sérstökum málum. Dreifing milli fjölmiðla er einnig skoðuð ásamt tegundum fjölmiðla. Alls voru 362 fréttir og greinar frá árunum þremur innihaldsgreindar eftir því hvort efnið væri jákvætt, neikvætt eða hlutlaust. Fréttir og greinar voru einnig flokkaðar eftir málefnum og stikkorðum. Niðurstöður verkefnisins sýna að fréttaumfjöllun hefur að mestu leyti verið hlutlaus. Hins vegar voru fleiri fréttir og greinar innihaldsgreindar sem neikvætt efni heldur en jákvætt efni. Að mati höfundar hefur fréttaumfjöllun um Knattspyrnusamband Íslands á árunum 2008 – 2010 verið hlutlaus með neikvæðu ívafi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS Ragnar Mar - KSÍ forsíða.pdf | 42.14 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
BS Ragnar Mar - KSÍ.pdf | 1.5 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |